Fundarsalir

Fundarsalirnir okkar eru tveir, Stóri Hamar tekur allt að 90 manns og Litli Hamar allt að 60 manns. 

Framúrskarandi þjónusta, þægilegt umhverfi og glæsilegt útsýni er hluti af því sem fylgir fundarhöldum á Hótel Hamri.

Á Hótel Hamri er öll sú tækni í boði sem þarf til að halda góðan fund. Aðgangur að tölvu, háhraða þráðlausu neti auk sjónvarps, DVD spilara, skjávarpa og fléttitöflu. Starfsfólk okkar sér svo til þess að allt fari fram eins og óskað er eftir.


Eftir langan vinnudag er svo gott að geta gleymt sér, slakað á á golfvellinum eða í heita pottinum.


Veislur og veisluþjónusta

Á Hótel Hamri bjóðum við upp á veisluþjónustu fyrir allt að 100 manns. Við erum með tvo góða sali sem henta vel fyrir hvers kyns tilefni og bjóðum fyrsta flokks veitingar, sérsniðnar fyrir veisluna þína


Áhugaverðir staðir og afþreying

  • Púttmót i nýrri inniaðstöðu í Brákarey í Borgarnesi
  • Rateikur fyrir hópa frá Landnámssetrinu í Borgarnesi (app)
  • Heimsókn í bruggverksmiðju Steðja
  • Krauma jarðböð - Deildartunguhver við Reykholt
  • Fjallamenn ehf/Mountaineers of Iceland er ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í jeppa- og vélsleðaferðum 
  • Ljómalind – Sveitamarkaður
  • Landbúnaðarsafn Íslands - Hvanneyri
  • Ullarselið á Hvanneyri
  • Landnámssetur Íslands
  • Ölvaldsstaðir Hestaleiga - Hestaferðir á bökkum Hvítár
  • Snorrastofa í Reykholti
  • Laxveiði- og sögusafnið Ferjukoti
  • Krauma - Deildartunguhver
  • Reykjavík Escape leikur „Sprengjan“ - Nánari upplýsingar hjá okkur
  • Tónlist: 5 manna band með ljós og pottþétt stuð Orri : 865-1699
  • Dj Gummi ( www.pantadj.is ). Við mælum með dj Gumma!
  • Trúbador - Hlynur Ben : 680-8119 


Share by: