Hótel Hamar er glæsilegt hótel á Vesturlandi á rólegum stað við golfvöllinn Hamar í þjóðleið rétt utan við Borgarnes. Á hótelinu ríkir friðsæld og kyrrð sem gerir hótelið að fullkomnum stað til að slaka á og endurnærast, með faglega þjónustu og öll þægindi innan handar. Útsýnið yfir Borgarfjörðinn er stórbrotið og Hamarinn, veitingastaður hótelsins, hefur getið sér gott orð fyrir að framreiða frábæran mat úr hráefni úr héraði.
Áhugamanneskjur um golf geta glaðst því Hamarsvöllur er við hótelið en hann er talinn einn sá besti utan Reykjavíkur. Þeir sem ekki spila golf geta notið náttúrunnar með göngu í kring eða á fjall. Í hótelgarðinum eru hægt að hafa það huggulegt í heitum pottum undir stjörnubjartri nótt eða miðnætursól.
Megin aðdráttarafl Íslands er hrein og ósnortin náttúra. Hótel Hamar gerir sér grein fyrir ábyrgð sinni gagnvart umhverfinu og starfar eftir alþjóðlegum staðli um umhverfisstjórnun, ISO 14001. Hótelið vinnur stöðugt að umbótum í umhverfismálum án þess að það komi niður á þjónustu við gesti.
Markmið í umhverfismálum:
Hótel Hamar stendur við þjóðveg 1 um það bil 4 km. norður af Borgarnesi á miðjum golfvellinum að Hamri. Hótelið er vel staðsett í einungis klukkustundar akstursfjarlægð frá höfuðborginni. Þú ert komin/nn í sveitina en samt við bæjardyr Borgarness.
Á Hótel Hamri nýtur þú kyrrðar í sveitinni, en öll þjónusta er þó innan seilingar í Borgarnesi. Þar sem þú finnur verslanir, heilsugæslu, íþróttaaðstöðu, söfn og fjölbreytta menningu. Margar góðar gönguleiðir eru í nágrenni hótelsins með styttri sem lengri gönguleiðum. Hrífandi landslag Borgarfjarðar lætur engan ósnortinn, stutt er til sjávar og jökla og er Snæfellsnes innan seilingar.
All Rights Reserved | Hótel Hamar