Sértilboð á Hotel Hamri
Gistipakkar
Ein nótt fyrir tvo á Hótel Hamri, með morgunverði eða með morgunverði og þriggja rétta kvöldverði. Nota þarf pakkann innan 12 mánaða. Eftir það má nýta fullt verðgildi hans upp í gistingu og veitingar í 3 ár til viðbótar.

KNOX gjafabréf
Inneign fyrir gistingu og veitingar á öllum hótelum KNOX. Þú velur hótelið.
Gjafabréf fyrir gistingu
Hótel HamarGisting og morgunverður, allt árið
44.900 kr.
Hótel HamarGisting og morgunverður, yfir veturinn
29.000 kr.
Hótel HamarGisting og kvöldverður, allt árið
64.800 kr.
Hótel HamarGisting og kvöldverður, yfir veturinn
49.900 kr.

Fyrir öll tilefni
Afmæli, brúðkaup, jól eða einfaldlega þakklætisvottur. Nótt við golfvöllinn í Borgarfirði, með morgunverði eða þriggja rétta kvöldverði, er gjöf sem gleymist ekki.
Veldu gistipakka eða upphæð
Greiddu á öruggan hátt á netinu
Fáðu gjafabréfið í tölvupósti eða sæktu gjafaöskjuna á Hótel Eyju, Brautarholti 10, Reykjavík
ALGENGAR SPURNINGAR
Hvernig bóka ég gistinguna?
Hafðu samband við Hótel Hamar í síma +354 433 6600 eða á hamar@hotelhamar.is og gefðu upp númer gjafabréfsins þegar þú bókar.
Hversu lengi gildir gjafabréfið?
Öll gjafabréf gilda í 4 ár. Nota þarf gistipakkann innan 12 mánaða frá kaupum. Eftir það má nýta fullt verðgildi hans upp í gistingu og veitingar í 3 ár til viðbótar.
Hvenær get ég notað vetrarpakka?
Vetrarpakka má bóka frá 15. október til 15. maí, þó ekki yfir jól, áramót eða páska. Heilsárspakka má bóka hvenær sem er, háð framboði.
Hvernig fæ ég gjafabréfið afhent?
Rafræn gjafabréf eru send strax í tölvupósti. Gjafaaskjan fylgir án aukakostnaðar ásamt mjúkri svefngrímu. Þú getur sótt hana í móttöku Hótel Eyju, Brautarholti 10, Reykjavík, eða við sendum hana í pósti.
Hvernig greiði ég?
Þú greiðir á öruggan hátt á greiðslusíðu SalesCloud.
Get ég pantað gjafabréf fyrir fyrirtækið?
Já. Sendu póst á knoxhotels@knoxhotels.is vegna fyrirtækjapantana.
Get ég keypt gjafabréf að ákveðinni upphæð?
Já. KNOX-gjafabréf fást frá 15.000 kr. upp í 100.000 kr. og gilda á Hótel Hamri og öllum öðrum hótelum KNOX. Veldu gjafabréf hér að ofan, undir KNOX-gjafabréf eftir upphæð.



